Framtíðin lánasjóður hf. afskráður sem lánveitandi 17. apríl 2020
ATH: Þessi grein er frá 17. apríl 2020 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Framtíðin lánasjóður hf. hefur verið afskráður sem lánveitandi samkvæmt lögum nr. 118/2016, um fasteignalán til neytenda. Félagið hefur hætt lánveitingum. Vörumerki, lén og eignir félagsins hafa verið keypt af Kviku banka hf., sem mun halda áfram starfsemi undir vörumerki Framtíðarinnar.