Fara beint í Meginmál

Kynningarefni fyrir skólahópa 30. apríl 2020

Starfsfólk Seðlabanka Íslands hefur tekið saman kynningarefni fyrir skólahópa sem er nú aðgengilegt hér á vefnum. Efnið er einkum hugsað fyrir nemendur í framhaldsskólum. Hópar þeirra hafa komið reglubundið í heimsókn í Seðlabankann en vegna kórónuveirufaraldursins hefur ekki orðið af slíkum heimsóknum að undanförnu.

Í kynningarefninu er farið yfir markmið, starfsemi, skipulag og stjórn bankans. Í undirbúningi er meira efni af þessu tagi.

Sjá hér kynningarefnið: Seðlabanki Íslands. Kynning fyrir framhaldsskólanemendur. Vorið 2020.

Einnig er hægt að fletta í gegn um kynningarefnið hér fyrir neðan.