Síðasta ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 8. október 2020
Ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins 2020 er komin út. Í þessari síðustu ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins er fjallað um það sem hæst bar í starfsemi Fjármálaeftirlitsins á tímabilinu 1. maí til 31. desember 2019, en stofnunin sameinaðist sem kunnugt er Seðlabanka Íslands í ársbyrjun 2020.
Sagt er frá eftirliti með fjármálafyrirtækjum, vátryggingastarfsemi, lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar, verðbréfamarkaðinum og rekstrarfélögum verðbréfasjóða. Þá er í skýrslunni einnig fjallað um hæfismat, leyfisveitingar, greiningu á kerfisáhættu og beitingu þjóðhagsvarúðartækja og eftirlit með aðgerðum til varnar peningaþvætti og alþjóðasamstarf Fjármálaeftirlitsins. Enn fremur er í skýrslunni umfjöllun um beitingu viðurlaga á tímabilinu, farið yfir þær breytingar sem urðu á réttarheimildum fjármálamarkaðar á þessu síðasta starfsári og sagt frá innviðum stofnunarinnar.
Hér má lesa Ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins 2020.