Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt niðurstöðu athugunar á aðgerðum Arctica Finance hf. gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmið athugunarinnar var að kanna fylgni Arctica Finance hf. við afmarkaða þætti laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og einnig, eftir atvikum, eldri laga nr. 64/2006 um sama efni. Þá voru könnuð atriði tengd alþjóðlegum þvingunaraðgerðum og fylgni við lög nr. 64/2019 um frystingu fjármuna.
Niðurstaða athugunar á aðgerðum Arctica Finance hf. gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka 10. febrúar 2021
ATH: Þessi grein er frá 10. febrúar 2021 og er því orðin meira en 5 ára gömul.