Fjármálaeftirlit 2021 20. apríl 2021
Í ritinu Fjármálaeftirlit, sem gefið er út árlega, er skýrt frá því hvernig Seðlabankinn vinnur að þeim verkefnum sem honum eru falin á sviði fjármálaeftirlits í lögum.
Ritið Fjármálaeftirlit 2021 hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu Fjármálaeftirlits leitast Seðlabankinn við að tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur bankans á sviði fjármálaeftirlits.
Í ritinu er skýrt frá því hvernig bankinn vann á árinu 2020 að þeim verkefnum sem fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eru falin í lögum auk þess sem upplýst er um helstu áherslur í fjármálaeftirliti í ár. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.
Í ritinu Fjármálaeftirlit, sem gefið er út árlega, er skýrt frá því hvernig Seðlabankinn vinnur að þeim verkefnum sem honum eru falin á sviði fjármálaeftirlits í lögum.