Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fyrir árið 2022 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum og verðbréfafyrirtækjum, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar upplýsingar um greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki.
Hér má finna heildarniðurstöðu ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2022.
Á sérstakri síðu er að finna eldri tölulegar upplýsingar af sama tagi: Ársreikningaskýrslur lánastofnana verðbréfafyrirtækja.