Meginmál

Nýjar reglur um tryggilega varðveislu fjármuna greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja

ATH: Þessi grein er frá 11. apríl 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Stjórnartíðindi birtu í upphafi þessa mánaðar reglur nr. 322/2014 um tryggilega varðveislu fjármuna rafeyrisfyrirtækja og reglur nr. 323/2014 um tryggilega varðveislu fjármuna greiðslustofnana. Reglur þessar má finna undir lög og tilmæli á vef Fjármálaeftirlitsins.

Reglurnar eru settar með heimild í lögum um greiðsluþjónustu, nr. 120/2011, og lögum um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013. Með reglunum er afmarkað með hvaða hætti varðveita skuli fjármuni sem rafeyrisfyrirtæki og greiðslustofnanir veita viðtöku, sem og hvaða fjárfestingar eru heimilar með þeim fjármunum.