Fjárfestingarfélagið Grettir hf. fær heimild til að fara með virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni hf. 15. febrúar 2007
ATH: Þessi grein er frá 15. febrúar 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Þann 8. febrúar 2007, veitti Fjármálaeftirlitið Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. heimild til þess að fara með 28,07% virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni hf. Framangreind heimild er veitt með vísan til laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi.