CEIOPS hefur birt ORSA skýrslu á heimasíðu sinni 19. júní 2008
ATH: Þessi grein er frá 19. júní 2008 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
CEIOPS (Committee of European Insurance and Occupational Pensions Supervisors) hefur birt á heimasíðu sinni skýrsluna, "Issues Paper on Own Risk and Solvency Assessment". Skýrslan kynnir afstöðu CEIOPS til ORSA (eigin áhættu og gjaldþolsmat) samkvæmt tilskipunardrögum um Solvency II (nýr gjaldþols- og eftirlitsstaðall fyrir vátryggingafélög).
Samkvæmt tilskipunardrögum um Solvency II verður ORSA hluti af áhættustýringarkerfi vátryggingafélaga. Skýrsluna má nálgast á vefsíðu CEIOPS .