Fjármálaeftirlitið veitir Alfa verðbréfum hf. starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki 13. apríl 2010
ATH: Þessi grein er frá 13. apríl 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið hefur veitt Alfa verðbréfum hf., kt. 700404-6760, Bankastræti 5, 101 Reykjavík, starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki, samkvæmt 5. tl. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Starfsleyfi Alfa verðbréfa hf. tekur til viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga, samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, sem felst í móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga skv. tölulið 6 a, fjárfestingarráðgjöf skv. tölulið 6 d og umsjón með útboði án sölutryggingar skv. tölulið 6 f í 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Starfsheimildir Alfa verðbréfa hf. skv. a. og d. 6. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki eiga bara við um fjármálagerninga tengdum samstarfsaðila Alfa, CREDIT SUISSE (UK) LIMITED.