Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu á vátryggingastofni 16. ágúst 2010
ATH: Þessi grein er frá 16. ágúst 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Með vísan til 2. mgr. 82. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 56/2010, sbr. 1. mgr. 70. gr. og 1. mgr. 84. gr. sömu laga, tilkynnist hér með um fyrirhugaða yfirfærslu vátryggingastofna í skaðatryggingum:
Frá General Star International Indemnity Ltd. til Faraday Reinsurance Co. Limited.
Vátryggingatakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðra yfirfærslna innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.
Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Fjármálaeftirlitið.
16. ágúst 2010.