Meginmál

Fjármálaeftirlitið hefur lagt mat á hæfi Sigurðar Harðarsonar til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Capacent Fjárfestingaráðgjöf hf.

ATH: Þessi grein er frá 25. febrúar 2011 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Hinn 10. febrúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Sigurður Harðarson Brúnastöðum 49, 112 Reykjavík, sé hæfur til að fara með virkan eignarhlut allt að 33 prósentum í Capacent Fjárfestingaráðgjöf hf., sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.