Samruni Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. við Landsbankann hf. 14. júní 2011
ATH: Þessi grein er frá 14. júní 2011 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. við Landsbankann hf. á grundvelli 1. mgr 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Landsbankinn hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Avant hf. og SP Fjármögnunar hf. og verða félögin sameinuð undir nafni Landsbankans hf.
Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.
Auglýsing varðandi samrunann verður birt í Lögbirtingablaði, sbr. 6. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið veitir frekari upplýsingar sé þess óskað.