Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti erindi á alþjóðlegri ráðstefnu í Hörpu sem Seðlabanki Íslands stóð fyrir í samstarfi við The Center for International Macroeconomics við Northwestern-háskóla í Illinois.
Í erindinu sem bar yfirskriftina „When Expectations Become De-Anchored: Monetary Stability Through Pandemic, War and Volatility“ fjallaði Ásgeir um hvernig röð áfalla leiddi til þess að verðbólguvæntingar hér á landi losnuðu frá verðbólgumarkmiðinu og veikti þar með virkni og trúverðugleika peningastefnunnar.
Ásgeir rakti hvernig Seðlabankinn brást við með aðhaldssamri peningastefnu og aukinni áherslu á að halda raunvöxtum nægilega háum til að festa verðbólguvæntingar á ný við markmiðið. Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi smám saman hjaðnað lagði hann áherslu á að enn væri það eitt helsta viðfangsefni peningastefnunnar að festa verðbólguvæntingar að fullu við markmiðið.