Meginmál

Breytingar á framkvæmdastjórn Seðlabanka Íslands 

Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Seðlabanka Íslands. Sturla Pálsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra markaðsviðskipta sl. 20 ár, tekur við sem forstöðumaður skilavalds Seðlabanka Íslands. Haukur C. Benediktsson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs, er settur framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og Flóki Halldórsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns skilavalds, er settur framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika.

Sturla Pálsson hefur starfað samfleytt í Seðlabanka Íslands frá árinu 2001. Áður starfaði hann í Íslandsbanka, hjá Hagstofunni og þar áður í Seðlabankanum. Árið 2005 varð hann framkvæmdastjóri sviðs markaðsviðskipta í Seðlabankanum og hefur gegnt þeirri stöðu síðan. Sturla var um tíma í stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. Sturla er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og masterspróf í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Haukur C. Benediktsson hóf störf í Seðlabankanum árið 2001 og var til ársins 2006, en var ráðinn aftur til bankans í janúar 2009. Hann sinnti starfi framkvæmdastjóra Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. frá janúar 2013 allt þar til félagið var lagt niður í febrúar 2019. Síðastliðin ár hefur Haukur gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands. Haukur er með B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics.

Flóki Halldórsson hefur starfað í aldarfjórðung á fjármálamörkuðum og í Seðlabanka Íslands. Síðustu fimm ár hefur hann veitt forstöðu skrifstofu skilavalds hjá Seðlabanka Íslands. Áður en hann gekk til liðs við Seðlabankann var hann framkvæmdastjóri sjóðafyrirtækisins Stefnis um tíu ára skeið. Flóki er með Executive MBA-gráðu frá Copenhagen Business School og lauk grunnnámi í hagfræði við Háskóla Íslands.