Birting um stöðu markaðsverðbréfa sýnir umfang og þróun skráðra verðbréfa eftir helstu tegundum. Í október 2026 var gagnasöfnun og aðferðafræði birtingarinnar endurskoðuð. Helstu breytingar felast í nýjum gagnalindum, breyttri afmörkun þeirra verðbréfa sem falla undir birtinguna og samræmdari meðferð skuldabréfa og víxla.
Breytingarnar ná til allra liða birtingarinnar, að hlutdeildaskírteinum undanskildum, og gögn voru endurreiknuð frá og með október 2023. Fyrir breytinguna voru upplýsingar um skráð hlutabréf, skuldabréf atvinnufyrirtækja, skuldabréf sveitarfélaga og erlend skuldabréf fengnar frá Kauphöll Íslands (Nasdaq OMXI). Upplýsingar um ríkisverðbréf voru fengnar frá Lánamálum ríkisins en aðrar upplýsingar byggðu á mánaðarlegum efnahagsyfirlitum innlánsstofnana, annarra fjármálafyrirtækja, ÍL-sjóðs og verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða. Frá og með október 2023 byggja gögn um verðbréf (að hlutdeildaskírteinum undanskildum) á upplýsingum frá Nasdaq verðbréfamiðstöð (Nasdaq CSD) og Verðbréfamiðstöð Íslands. Gögn um hlutdeildaskírteini byggja áfram á mánaðarlegum efnahagsyfirlitum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða.
Umfang gagna frá Kauphöll Íslands og verðbréfamiðstöðvum er ekki að öllu leyti sambærilegt. Í gögnum frá Kauphöll er heildarútgáfa tvískráðra verðbréfa sem tekin eru til viðskipta á Íslandi hvort sem þau eru í vörslu íslenskrar verðbréfamiðstöðvar eða erlendrar. Gögn innlendu verðbréfamiðstöðvanna ná hins vegar til verðbréfa sem eru í vörslu eða skráð hjá viðkomandi verðbréfamiðstöð, óháð því hvort þau hafi verið gefin út hér á landi eða erlendis. Frá og með október 2023 eru öll skuldabréf og víxlar birt að frádreginni eigin eign útgefanda en áður átti það einungis við um ríkisverðbréf. Þá voru verðtryggð ríkisbréf áður birt án áfallinna vaxta og verðbóta en eru nú birt að þeim meðtöldum.
Breytingar milli september og október 2023 endurspegla breytta gagnasöfnun og aðferðafræði ásamt raunverulegum breytingum á útgáfu og verðmæti verðbréfa.