Fara beint í Meginmál

Eftirlitsstofnanir á fjármálasviði í Evrópu vara neytendur við áhættu og takmarkaðri vernd vegna sýndareigna6. október 2025

Evrópsku eftirlitsstofnanirnar (EBA, EIOPA og ESMA – ESA-stofnanirnar) gáfu í dag út viðvörun til neytenda um að sýndareignir geti verið áhættusamar og að vernd, ef einhver er, geti verið takmörkuð eftir því í hvaða sýndareignum þeir fjárfesta. Þessari viðvörun fylgir upplýsingablað þar sem útskýrt er hvað ný reglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir (MiCA) þýðir fyrir neytendur. ESA-stofnanirnar mæla með ákveðnum skrefum fyrir neytendur svo þeir geti  tekið upplýstar ákvarðanir áður en þeir fjárfesta í sýndareignum, svo sem að kanna hvort veitandinn hafi starfsleyfi.

Sjá hér frétt frá Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni, EBA:
Eftirlitsstofnanir á fjármálasviði í Evrópu vara neytendur við áhættu og takmarkaðri vernd vegna sýndareigna og vegna veitenda slíkrar þjónustu

Viðvaranir evrópsku eftirlitsstofnananna eru aðgengilegar á íslensku

Viðvörun vegna sýndareigna:
Viðvörun EBA, EIOPA og ESMA vegna sýndareigna
(EBA er Evrópska bankaeftirlitsstofnunin, EIOPA er Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin og ESMA er Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin)

Hér er skjal þar sem sýndareignir eru útskýrðar:
Hvað er sýndareign?