Í niðurstöðu könnunar- og matsferlis Fossa fjárfestingarbanka hf. árið 2024 var gerð krafa um viðbótar eigið fé sem nam 0,7% af áhættugrunni, m.a. með hliðsjón af atriðum sem sneru að aðferðafræði og mati á tilteknum áhættuþáttum. Var bankanum falið að ráðast í úrbætur og myndi fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands endurskoða kröfu sína ef úrbætur væru fullnægjandi.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur nú lokið viðeigandi úrbótum og hefur fjármálaeftirlitið því ákveðið að fella brott áðurnefnda kröfu. Viðbótareiginfjárkrafan lækkar því um 0,7 prósentur og verður 8,4% af áhættugrunni í stað 9,1% áður, sbr. 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Fossar fjárfestingarbanki hf. skal því frá og með 26. mars 2026 og þar til annað verður ákveðið fullnægja lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn sem nemur 16,4% af áhættugrunni á hverjum tíma. Lágmarkskrafa fjármálaeftirlitsins um eiginfjárgrunn skiptist með eftirfarandi hætti:
- Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn (stoð I) nemur 8% af áhættugrunni. Af kröfunni skal almennt eigið fé þáttar 1 nema að lágmarki 4,5% af áhættugrunni og eiginfjárþáttur 1 skal nema að lágmarki 6% af áhættugrunni, sbr. 1. mgr. 92. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 (CRR).
- Viðbótarkrafa um eiginfjárgrunn samkvæmt mati fjármálaeftirlitsins (stoð II-R) samkvæmt 1. tölul. 3. mgr. 107. gr. a laga um fjármálafyrirtæki nemur 8,4% af áhættugrunni. Af kröfunni skal almennt eigið fé þáttar 1 nema að lágmarki 4,7% af áhættugrunni og eiginfjárþáttur 1 skal nema að lágmarki 6,3% af áhættugrunni, sbr. 6. mgr. 92. gr. CRR.
Fossar fjárfestingarbanki hf. skal jafnframt fullnægja heildarkröfu um eiginfjárgrunn. Hún felur í sér lágmarkskröfu fjármálaeftirlitsins um eiginfjárgrunn, auk samanlagðrar kröfu um eiginfjárauka sem nemur nú 5,0% af áhættugrunni, og skal henni vera að fullu mætt með almennu eigin fé þáttar 1, sbr. 83. gr. a laga um fjármálafyrirtæki.
Upplýsingar um eiginfjárkröfur Fossa fjárfestingarbanka hf. hafa einnig verið uppfærðar hér.