Fara beint í Meginmál

ESMA hvetur þjónustuveitendur sýndareigna án starfsleyfis til að hætta starfsemi í ESB 24. júní 2026

Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitið (ESMA) skorar á þjónustuveitendur sýndareigna (CASP) sem ekki hafa fengið viðeigandi starfsleyfi, að hætta starfsemi sinni innan ESB þegar aðlögunartímabili MiCA-reglugerðarinnar lýkur hinn 1. júlí 2026. Þetta felur meðal annars í sér að fyrirtækjum ber að hætta þegar í stað móttöku nýrra viðskiptavina, stöðva alla markaðssetningu og upplýsa núverandi viðskiptavini með skýrum hætti um stöðuna. Samsvarandi reglur hafa verið innleiddar í íslenskan rétt og því á það sama við hér á landi.

Í yfirlýsingu ESMA kemur fram að eftir 1. júlí 2026 verði hefðbundin starfsemi þessara fyrirtækja ólögleg innan ESB. Þeim verður einungis heimilt að sinna þeim lágmarksaðgerðum sem nauðsynlegar eru til að viðskiptavinir geti selt eignir sínar, millifært þær eða lokað stöðum sínum á skipulegan hátt.

ESMA minnir jafnframt neytendur á að kanna hvort þjónustuveitandi þeirra hafi fengið starfsleyfi samkvæmt MiCA-reglugerðinni með því að fletta honum upp í opinberri leyfisskrá ESMA.