Fara beint í Meginmál

ESMA óskar eftir sjónarmiðum haghafa um fjárfestingarferli almennra fjárfesta samkvæmt MiFID II

Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) óskar eftir upplýsingum og sjónarmiðum markaðsaðila og annarra haghafa um fjárfestingarferli almennra fjárfesta (e. retail investor journey) samkvæmt MiFID II. Fyrrgreint regluverk var innleitt með lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

Á meðal atriða sem ESMA leitast eftir endurgjöf um eru:

  • Áhugi yngri fjárfesta á áhættusömum fjárfestingarkostum.
  • Áhrif samfélagsmiðla á fjárfestingarákvarðanir.
  • Beiting á skyldum samkvæmt MiFID II regluverkinu í framkvæmd s.s. um upplýsingagjöf og mat á hæfi og tilhlýðileika.

Samráðsferlið er hluti af viðleitni ESMA til að leggja lóð sín á vogarskálar til að draga úr reglu- og eftirlitsbyrði (e. simplification and burden reduction).

ESMA mun í framhaldinu meta, í samráði við lögbær yfirvöld á evrópska efnahagssvæðinu, hvort þörf er á að gera breytingar á löggjöfinni eða gera hana skýrari til að auka fjárfestavernd og þátttöku almennra fjárfesta á fjármálamarkaði.

Aðilar hafa frest til 21. júlí nk. til að koma á framfæri sjónarmiðum við vangaveltum ESMA.