Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands lýkur máli vegna ólögmætrar miðlunar innherjaupplýsinga með sátt 20. ágúst 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn c-lið 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. 10. gr. reglugerðarinnar, sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að miðla innherjaupplýsingum til annarra nema slíkt fari fram í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur þess sem býr yfir upplýsingunum.

Það var niðurstaða fjármálaeftirlitsins að málsaðili hefði búið yfir upplýsingum um fyrirhugaðan samruna eða yfirtöku sem uppfylltu skilyrði þess að teljast innherjaupplýsingar samkvæmt 7. gr. MAR. Um var að ræða upplýsingar sem voru nægjanlega tilgreindar, höfðu ekki verið gerðar opinberar, vörðuðu útgefanda fjármálagerninga og voru líklegar til að hafa marktæk áhrif á verð fjármálagerninga ef þær yrðu gerðar opinberar. Þá taldi fjármálaeftirlitið að málsaðili hefði miðlað þessum upplýsingum á fundi með þeim hætti að aðrir fundargestir gátu skilið efni þeirra og áttað sig á þýðingu þeirra. Við mat á því hvort innherjaupplýsingum hefði verið miðlað var litið til þess hvort móttakendur hefðu getað áttað sig á inntaki upplýsinganna.

Við mat á því hvort miðlunin hefði farið fram í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur málsaðila lagði fjármálaeftirlitið áherslu á hvort náin tengsl væru milli miðlunarinnar og þeirra starfa, stöðu eða skyldna sem á málsaðila hvíldu, hvort miðlunin hefði verið nauðsynleg vegna framangreinds og hvort meðalhófs hafi verið gætt þannig að ekki hefði verið miðlað víðtækari upplýsingum en þörf var. Að mati fjármálaeftirlitsins fór miðlunin ekki fram í eðlilegum tengslum við starf, stöðu eða skyldur málsaðila og taldist hún því ólögmæt.

Málið var lagt fyrir fjármálaeftirlitsnefnd til ákvörðunar, sbr. c-lið 1. mgr. 15. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands. Á fundi nefndarinnar 7. maí 2026 var talið að málið væri að fullu upplýst og að skilyrði væru til að ljúka því með sátt. Málinu lauk með undirritun sáttar þar sem málsaðili féllst á greiðslu sektar að fjárhæð 65.000.000 kr.

Samkvæmt gagnsæisstefnu Seðlabanka Íslands eru niðurstöður mála birtar í heild eða í formi útdráttar. Nöfn málsaðila og annarra einstaklinga eru að jafnaði ekki birt nema þau hafi sérstaka þýðingu og hagsmunir fjármálamarkaðarins séu taldir vega þyngra en hagsmunir viðkomandi af nafnleynd. Sáttin hefur að geyma umtalsvert magn upplýsinga sem gætu auðkennt málsaðila og aðra einstaklinga. Birting hennar með yfirstrikunum myndi því gera efni hennar sundurslitið og óskýrt. Niðurstaða málsins er þess vegna birt í formi útdráttar.