Heildarfjármunaeign fjármálafyrirtækja á 2. ársfjórðungi 2025 nam 21.494,2 ma. kr. og hafði hækkað um 73,4 ma. kr. frá 1. ársfjórðungi 2025. Helstu breytingar voru þær að sjóðir og innstæður hækkuðu um 82,5 ma.kr. Heildarskuldir fjármálafyrirtækja námu 21.670,7 ma.kr. og hækkuðu um 74,7 ma.kr. á ársfjórðungnum. Helstu breytingar voru þær að markaðsskuldabréf og víxlar lækkuðu um 703,9 ma.kr. Þær breytingar skýrast að mestu leyti af uppgjöri á skuldbindingum ÍL-sjóðs sem fór fram á ársfjórðungnum. Nettó fjármunaeign fjármálafyrirtækja á 2. ársfjórðungi 2025 var neikvæð um 176,5 ma.kr.
Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til heimila í lok 2. ársfjórðungs 2025 var 3.211,8 ma.kr. þar af námu skuldir heimila með veði í íbúð 2.820,8 ma.kr. Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til fyrirtækja í lok 2. ársfjórðungs 2025 var 2.740,5 ma.kr. að teknu tilliti til niðurfærslna. Eign fjármálafyrirtækja í markaðsskuldabréfum fyrirtækja nam 622,0 ma.kr.
Fjármálareikningar eru birtir sem heildar efnahagsyfirlit fjármálafyrirtækja en einnig eru birtar töflur sem skipta þeim niður annars vegar eftir tegundum fjármálafyrirtækja og hins vegar eftir mótaðilum.
Tímaraðir eru birtar fyrir heildina og einnig skiptar niður eftir tegundum fyrirtækja. Til viðbótar eru birtar tímaraðir með skuldum fyrirtækja við fjármálafyrirtæki, annars vegar skipt eftir lánveitendum og hins vegar eftir tegundum lána. Einnig eru birtar tímaraðir með eign fjármálafyrirtækja á skuldabréfum útgefnum af atvinnufyrirtækjum. Tímaröðum með skuldum heimila við fjármálafyrirtæki er skipt eftir lánveitendum og tegundum lána. Einnig er birt tímaröð um skuldir heimila með veði í íbúð sundurliðað eftir tegundum lána.
Fjármálareikningar eru unnir samkvæmt aðferðafræði sem byggir á þjóðhagsreikningastaðli Evrópusambandsins (ESA2010) og staðli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um hagtölur peninga- og fjármála.
Hagstofa Íslands birtir fjármálareikninga fyrir allt hagkerfið á vefsíðu sinni
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is