Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt fundargerð nefndarinnar, en fundargerðina skal birta tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt.
Hér er því birt fundargerð fundar peningastefnunefndar 19.-20. maí 2025, en á honum ræddi nefndin þróun efnahags, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 21. maí.
Nánari upplýsingar um peningastefnu og peningastefnunefnd er að finna hér.