Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 30,5 ma.kr. á öðrum ársfjórðungi 2024 - hrein staða við útlönd jákvæð um 38,9% af VLF

Á öðrum ársfjórðungi 2024 var 30,5 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 3,3 ma.kr. betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 36,6 ma.kr. lakari en á sama fjórðungi árið 2023. Halli á vöruskiptajöfnuði var 89,5 ma.kr. en 67,2 ma.kr. afgangur á þjónustujöfnuði (Sjá á vef Hagstofunnar).

Frumþáttatekjur skiluðu 5,4 ma.kr. afgangi en rekstrarframlög 13,7 ma.kr. halla (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2024 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður (ma.kr.)

2024/22024/12023/42023/32023/2

Viðskiptajöfnuður

-30,5

-33,8

-23,2

81,8

6,1

   Vöruskiptajöfnuður

-89,5

-55,5

-76,8

-84,4

-82,6

   Þjónustujöfnuður

67,2

17,9

37,3

155,0

88,9

   Jöfnuður frumþáttatekna

5,4

14,4

28,6

23,0

11,3

   Rekstrarframlög, nettó

-13,7

-10,6

-12,3

-11,8

-11,6

Jöfnuður fjárframlaga

-1,4

-0,8

-1,4

-0,7

-0,9

Fjármagnsjöfnuður

-39,9

11,1

68,8

-48,4

-30,9

   Bein fjárfesting

18,4

10,8

96,6

-130,4

-3,5

   Verðbréf

59,1

-202,3

92,9

99,5

-74,8

   Afleiður

1,5

-0,1

-3,7

-6,9

-2,6

   Önnur fjárfesting

-97,6

82,9

-120,9

92,5

-73,1

   Gjaldeyrisforði

-21,4

119,8

4,0

-6,3

-26,4

   Sekkjur og vantalið, nettó

-8,0

45,7

93,4

-32,7

-36,1

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.705 ma.kr. eða 38,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 47 ma.kr. eða 1,1% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.173 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.468 ma.kr. Á fjórðungnum versnaði staðan um 40 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Erlendar eignir lækkuðu um 132 ma.kr. og skuldir um 92 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar hækkuðu virði eigna á ársfjórðungnum um 19 ma.kr. og lækkuðu virði skulda um 6 ma.kr. og leiddu því til 24 ma.kr. betri hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um tæp 0,3% miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum hækkaði um 2,2% milli fjórðunga en verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði lækkaði um 3,3%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga (ma.kr.)

Staða í lok 2024/2FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2024/1

Erlendar eignir, alls

6.173

-132

19

88

6.199

   Bein fjárfesting

1.063

-11

-2

87

990

   Verðbréf

3.548

-1

28

0

3.521

   Afleiður*

5

2

-4

0

8

   Önnur fjárfesting

669

-100

1

1

767

   Gjaldeyrisforði

88

-21

-3

0

912

Erlendar skuldir, alls

4.468

-92

-6

119

4.446

   Bein fjárfesting

1.628

-30

1

116

1.541

   Verðbréf

1.537

-60

-5

0

1.602

   Afleiður*

13

0

-1

0

14

   Önnur fjárfesting

1.290

-3

0

3

1.290

Hrein staða þjóðarbúsins

1.705

40

24

-32

1.753

Hlutfall af VLF (%)

38,9

0,9

0,6

0,7

39,9

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður

Frétt nr. 12/2024