Fara beint í Meginmál

Halli á viðskiptajöfnuði 32,1 ma.kr á fyrsta ársfjórðungi 2026 og hrein erlend staða versnar 4. júní 2026

Á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 32,1 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 2,5% af landsframleiðslu og batnaði um 7 ma.kr. milli ársfjórðunga og er betri sem nemur 38,2 ma.kr. miðað við sama fjórðung árið 2025. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 23,4 ma.kr. en 29,3 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði (Sjá á vef Hagstofunnar).  Halli af frumþáttatekjum var 20,6 ma.kr. og 17 ma.kr. á rekstrarframlögum. (tafla 1).

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit yfir greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2026 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Tafla 1: Greiðslujöfnuður

Ma.kr.2025/12025/22025/32025/42026/1

Viðskiptajöfnuður

-70,2

-105,4

33,1

-39,1

-32,1

   Vöruskiptajöfnuður

-84,4

-125,6

-101,7

-73,4

-23,4

   Þjónustujöfnuður

17,8

58,8

147,1

49,4

29,3

   Jöfnuður frumþáttatekna

9,1

-25,7

3,5

0,7

-20,6

   Rekstrarframlög, nettó

-12,8

-12,8

-15,9

-15,8

-17,3

Jöfnuður fjárframlaga

-1,0

-1,0

160,7

-1,3

-1,0

Fjármagnsjöfnuður

-43,9

-56,2

193,8

-56,6

28,5

   Bein fjárfesting

-83,7

-6,4

93,8

-32,3

-21,3

   Verðbréf

40,3

-95,5

21,2

-50,6

5,4

   Afleiður

0,0

-1,1

-3,9

0,6

-0,7

   Önnur fjárfesting

5,1

0,9

60,0

12,5

55,9

   Gjaldeyrisforði

-5,6

45,9

22,7

13,2

-10,9

   Skekkjur og vantalið, nettó

27,3

50,1

0,0

-16,2

61,6

Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 2.178 ma.kr. eða 42,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 104 ma.kr. eða 2,1% af VLF á fjórðungnum. Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 6.900 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 4.722 ma.kr. Erlendar eignir jukust um 85 ma.kr. og skuldir um 55 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta. Gengis- og verðbreytingar lækkuðu virði eigna á ársfjórðungnum um 230 ma.kr. og skulda um 75 ma.kr. og leiddu því til 155 ma.kr. lakari hreinnar erlendrar stöðu. Gengi krónunnar hækkaði um 1,4% á fjórðungnum miðað við gengisskráningarvog. Verð á erlendum verðbréfamörkuðum lækkaði um 3,9% milli fjórðunga og verð á bréfum á innlendum hlutabréfamarkaði lækkaði um 5,6%.

Tafla 2: Breyting á erlendri stöðu þjóðarbúsins á milli ársfjórðunga

Ma.kr.Staða í lok 2025/4FjármagnsjöfnuðurGengis- og verðbreytingarAðrar breytingarStaða í lok 2026/1

Erlendar eignir, alls

7.052

85

-230

-7

6.900

   Bein fjárfesting

863

33

-13

-4

879

   Verðbréf

4.339

19

-197

0

4.161

   Afleiður*

15

1

5

0

21

   Önnur fjárfesting

867

43

-12

-4

894

   Gjaldeyrisforði

968

-11

-13

0

944

Erlendar skuldir, alls

4.769

55

-75

-28

4.722

   Bein fjárfesting

1.797

54

-14

-9

1.828

   Verðbréf

1.734

14

-58

0

1.690

   Afleiður*

11

0

6

0

17

   Önnur fjárfesting

1.227

-13

-9

-19

1.187

Hrein staða þjóðarbúsins

2.283

28

-155

21

2.178

(%) af VLF 

45,0%

0,6%

-3,1%

0,4%

42,9%

*Aðrar breytingar eru taldar undir gengis- og verðbreytingum fyrir afleiður.

Talnaefni um greiðslujöfnuð má nálgast hér.

Talnaefni um erlenda stöðu þjóðarbúsins má nálgast hér.