Fara beint í Meginmál

Heildarniðurstöður ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2023

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fyrir árið 2023 hjá fjármálafyrirtækjum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánafyrirtækjum og verðbréfafyrirtækjum, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða. Í skýrslunni er einnig að finna upplýsingar um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða. Jafnframt er í skýrslunni að finna nánar tilteknar upplýsingar um greiðslustofnanir og rafeyrisfyrirtæki.

Á sérstakri síðu er að finna eldri tölulegar upplýsingar af sama tagi