Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur tekið saman skýrslu með heildarniðurstöðum ársreikninga fjármálafyrirtækja, þ.e. viðskiptabanka, sparisjóða, lánafyrirtækja og verðbréfafyrirtækja, ásamt rekstrarfélögum verðbréfasjóða og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, fyrir árið 2024, auk upplýsinga um heildareignir verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og heildareignir og hreina eign annarra sérhæfðra sjóða. Þá eru birtar sambærilegar upplýsingar úr ársreikningum greiðslustofnana og rafeyrisfyrirtækja. Jafnframt eru birtar upplýsingar um meðalstarfsmannafjölda móðurfélaga fjármálafyrirtækja og annarra aðila sem og yfirlit yfir afgreiðslustaði viðskiptabanka og sparisjóða hér á landi í árslok 2024.
Hér má finna heildarniðurstöðu ársreikninga fjármálafyrirtækja o.fl. 2024.
Á sérstakri síðu er að finna eldri tölulegar upplýsingar af sama tagi: