Eignir innlánsstofnana námu 6.282,4 ma.kr í lok mars og lækkuðu um 9,4 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.615,4 ma.kr. og hækkuðu um 6,1 ma.kr. Erlendar eignir námu 667 ma.kr. og lækkuðu um 15,5 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.330,6 ma.kr. og hækkuðu um 79,7 ma.kr. í mars. Erlendar skuldir námu 1.144,2 ma.kr. og lækkuðu um 27,9 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 807,6 ma.kr. í lok mars og lækkaði um 61,2 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 47,7 ma.kr. í lok mars, þar af voru verðtryggð lán -6,9 ma.kr., óverðtryggð lán 45,3 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 6,8 ma.kr. og eignarleiga 2,5 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 11,8 ma.kr. í mars, þar af námu lán með veði í íbúð 8,5 ma.kr. sem var 3,4 ma.kr. hækkun frá febrúar.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is