Fara beint í Meginmál

Könnun á væntingum markaðsaðila 11. til 13. ágúst

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 11. til 13. ágúst sl. Leitað var til 37 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör fengust frá 28 aðilum og var svarhlutfallið því 76%.

Helstu niðurstöður

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti lítillega meiri verðbólgu á næstu ársfjórðungum en í síðustu könnun í maí sl. Væntingar þeirra um verðbólgu eftir eitt ár og til lengri tíma voru hins vegar nánast óbreyttar milli kannana. Miðað við miðgildi svara vænta markaðsaðilar að verðbólga verði 3,4% eftir eitt ár, 3% eftir tvö ár og að meðaltali 3% á næstu fimm og tíu árum. Þá benda niðurstöðurnar til þess að markaðsaðilar búast við því að gengi krónunnar lækki á næstu misserum og að gengi evru gagnvart krónu verði 145,5 krónur eftir eitt ár.

Miðað við miðgildi svara í könnuninni gera markaðsaðilar ráð fyrir því að meginvextir Seðlabankans verði óbreyttir í 7,5% það sem eftir lifir árs en í síðustu könnun var talið að vextirnir yrðu lækkaðir í 7,25% á þriðja ársfjórðungi og í 6,75% á þeim fjórða. Markaðsaðilar gera þó ráð fyrir því að meginvextir taki að lækka aftur á ný í byrjun næsta árs og verði 6,75% eftir eitt ár sem eru hærri vextir en þeir gerðu ráð fyrir í maí. Væntingar markaðsaðila um meginvexti eftir tvö ár eru hins vegar óbreyttar milli kannana í 5,75%.

Hlutfall svarenda sem taldi taumhald peningastefnunnar vera of þétt minnkaði milli kannana og var 43%, samanborið við 64% í síðustu könnun. Um 43% taldi taumhaldið vera hæfilegt samanborið við 36% í maí. Þá taldi 14% svarenda taumhaldið of lítið en enginn taldi það of laust í maíkönnuninni.

Heildardreifing svara um væntingar til verðbólgu á fjórða ársfjórðungi og að meðaltali næstu fimm og tíu ár var meiri en í maíkönnuninni. Heildardreifingin var hins vegar nánast óbreytt með tilliti til annarra tímalengda. Heildardreifing svara markaðsaðila um væntingar þeirra um þróun vaxta minnkaði milli kannana.

Frekari upplýsingar um könnun á væntingum markaðsaðila má finna á meðfylgjandi síðu: