Fara beint í Meginmál

Lifa Ventures ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða30. apríl 2025

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Lifa Ventures ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 15. apríl 2025, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.