Fara beint í Meginmál

Ný rannsóknarritgerð um áhrif gengisbreytinga á dagvöruverð 24. nóvember 2026

Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „The only way is up? Asymmetric exchange rate pass-through in scraped daily price data“ eftir Alisar Nakour, Bjarna G. Einarsson, Þorstein S. Sveinsson og Pálmar Þorsteinsson, hagfræðinga hjá Seðlabankanum.

Rannsóknin kannar gengisleka (e. exchange rate pass-through) í matvæla- og drykkjarverði á Íslandi og notar til þess bæði dagleg og mánaðarleg gögn. Hátíðni verðvísitala er búin til úr smásöluverði og grenndarvörpun notuð til að meta áhrif gengisbreytinga á innlent matvæla- og drykkjarverð. Niðurstöðurnar benda til þess að gengislekinn sé ósamhverfur: veiking krónunnar gagnvart evru tengist marktækri og viðvarandi verðhækkun á meðan styrking krónunnar hefur minni og oft ómarktæk áhrif. Niðurstaðan undirstrikar mikilvægi þess að taka tillit til ósamhverfu við greiningu á verðbólguþróun og peningastefnu í litlum opnum hagkerfum sem eru háð innflutningi.

Sjá ritið hér: