Fara beint í Meginmál

Nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands kosið

Nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands. F.v. Ólafur Ísleifsson, Birgir Ármannsson, Oddný Árnadóttir, Bolli Héðinsson, Gylfi Zoëga og Arnar Bjarnason. Á myndina vantar Guðrúnu Johnsen.
Nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands. F.v. Ólafur Ísleifsson, Birgir Ármannsson, Oddný Árnadóttir, Bolli Héðinsson, Gylfi Zoëga og Arnar Bjarnason. Á myndina vantar Guðrúnu Johnsen.

Alþingi kaus nýtt bankaráð Seðlabanka Íslands hinn 18. júní sl. Á fyrsta fundi ráðsins 25. júní sl. var Bolli Héðinsson kosinn formaður ráðsins og Gylfi Zoëga kosinn varaformaður.

Aðalfulltrúar í bankaráði eru Bolli Héðinsson, Gylfi Zoëga, Guðrún Johnsen, Oddný Árnadóttir, Birgir Ármannsson, Ólafur Ísleifsson og Arnar Bjarnason.

Varafulltrúar í bankaráði eru Freyja Vilborg Þórarinsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Katrín Viktoría Leiva, Teitur Björn Einarsson, Bessí Þóra Jónsdóttir og Aðalheiður Sigursveinsdóttir en enn á eftir að skipa einn varamann í ráðið.