Seðlabankinn heldur vöxtum óbreyttum í 8%
Vefútsending
Vefútsending vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar og útgáfu Peningamála.
Tengt efni
Gögn fyrir myndir í PM 2026/4
Í hnotskurn
Þrátt fyrir viðvarandi stríðsátök hafa alþjóðleg efnahagsumsvif verið þróttmeiri en gert var ráð fyrir í ágústspá Peningamála. Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum mældist 1,9% á öðrum ársfjórðungi og nú er gert ráð fyrir 1,8% hagvexti á árinu öllu samanborið við 1,5% í ágústspánni. Alþjóðleg verðbólga hefur þó aukist enn frekar, einkum vegna hækkunar orku- og hrávöruverðs, og seðlabankavextir hafa víða verið hækkaðir.
Hagvöxtur hér á landi mældist 1,3% á fyrri helmingi ársins. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands dróst landsframleiðsla saman um 1,1% milli ára á öðrum ársfjórðungi og talið er að það hafi einnig verið samdráttur á þriðja fjórðungi. Dregið hefur úr innlendri eftirspurn og horfur eru á minni vexti einkaneyslu en áður var spáð. Útflutningshorfur hafa jafnframt versnað, m.a. vegna minni aflaheimilda í sjávarútvegi. Hagvaxtarhorfur hafa því versnað frá ágústspánni. Nú er spáð 1% hagvexti í ár og 1,2% á næsta ári sem er í báðum tilvikum um ½ prósentu minni vöxtur en þá var gert ráð fyrir. Líkt og í ágúst er talið að hagvöxtur aukist á ný þegar líður á spátímann.
Fjölgun starfa hefur í meginatriðum stöðvast og á almennum vinnumarkaði hefur þeim fækkað. Kannanir benda til þess að fyrirtæki vilji fækka störfum og því eru atvinnuhorfur áfram lakar. Atvinnuleysi hefur áfram þokast upp og búist er við að það nái hámarki á næsta ári en taki í kjölfarið að minnka. Eftir viðvarandi spennu í þjóðarbúinu er talið að slaki hafi myndast undir lok síðasta árs og að hann aukist fram á næsta ár en minnki síðan á ný.
Verðbólga mældist að meðaltali 5,6% á þriðja ársfjórðungi eins og spáð var í ágúst. Hún jókst er leið á fjórðunginn og var 5,9% í október. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar lítið breyst og var um 4,2% í október. Verðbólguvæntingar markaðsaðila hafa lækkað en eru enn yfir markmiði. Búist er við lítillega meiri verðbólgu á næstunni en gert var ráð fyrir í ágúst vegna hærra alþjóðlegs orkuverðs eða 5,8% á fjórða ársfjórðungi og 4,6% á fyrsta fjórðungi næsta árs. Áfram er talið að verðbólga minnki tiltölulega hratt þegar líður á næsta ár og verði komin undir 4% um mitt næsta ár og í 3% undir lok þess. Samkvæmt grunnspá bankans verður verðbólga komin í markmið á fyrri hluta árs 2028.
Alþjóðleg efnahagsþróun mun áfram ráðast að verulegu leyti af framvindu stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og Úkraínu og mögulegum truflunum á orku- og hrávörumörkuðum. Hækki olíu- og hrávöruverð meira en gert er ráð fyrir eða reynist áhrif kostnaðarhækkana víðtækari og langvinnari en búist er við gæti verðbólga orðið þrálátari en samkvæmt grunnspá. Þá ríkir óvissa um þróun viðskiptakjara og gengis krónunnar. Viðskiptakjör hafa batnað
töluvert undanfarin ár og gengi krónunnar hækkað en snúist sú þróun við gæti innlend eftirspurn orðið veikari en ella á sama tíma og verðbólga yrði meiri. Á hinn bóginn gæti framleiðni vaxið hraðar en gert er ráð fyrir, m.a. fyrir tilstilli tækniframfara, sem myndi auka framleiðslugetu þjóðarbúsins og stuðla að hraðari hjöðnun verðbólgu.
Rammagreinar
Í ritinu Peningamál 2026/4 má finna eftirfarandi fimm rammagreinar auk þess sem hægt er að skoða yfirlit yfir áður útgefnar rammagreinar.
Rammagrein | Bls. |
|---|---|
Fráviksdæmi og óvissuþættir | 52 |
Áhrif starfsemi gagnavera á efnahagsumsvið og þjóðhagsreikninga | 58 |
Jafnvægisstærðir í þjóðhagslíkönum Seðlabankans | 63 |
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 | 70 |
Spár Seðlabankans um efnahagsþróun ársins 2025 | 75 |