Fara beint í Meginmál

Reglu­bund­inni um­ræðu um Ísland lokið í fra­m­kvæmda­stjórn Alþjóðagjal­dey­ris­sjóðsins

Mánudaginn 16. júní 2025 fór fram árleg umræða um stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en sérfræðingar á hans vegum gera úttekt á efnahagslífi aðildarlanda á eins til tveggja ára fresti á grundvelli 4. greinar stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Sendinefnd frá AGS átti fundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum í apríl og maí sl.

Nýjustu skýrslur um Ísland voru birtar í dag á heimasíðu sjóðsins, sjá hér fyrir neðan ásamt öðru nýlegu efni.