Fara beint í Meginmál

Samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða 25. júní 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða og sambærilegum gögnum frá vörsluaðilum séreignarsparnaðar. Á liðnu ári störfuðu 19 lífeyrissjóðir í 25 samtryggingardeildum og af þeim buðu 13 sjóðir upp á séreignarsparnað í 45 deildum. Aðrir innlendir vörsluaðilar séreignarsparnaðar voru fimm talsins og buðu upp á sparnað í 31 séreignardeild. Þrír erlendir vörsluaðilar buðu upp á lífeyrisafurðir sem flokkast sem séreignarsparnaður. Lífeyrissparnaður landsmanna í formi samtryggingar og séreignar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila nam 9.463 ma.kr við lok ársins og jókst um 8% milli ára.

Í samantektinni eru jafnframt birtar afmarkaðar lykiltölur um séreignarsparnað hjá erlendum vörsluaðilum. Upplýsingarnar eru settar fram í sérstöku yfirliti, til aðgreiningar frá séreignarsparnaði í vörslu innlendra aðila, þar sem um eðlisólíkar afurðir er að ræða. Séreignarsparnaður hjá innlendum lífeyrissjóðum og lánastofnunum byggist á sjóðsöfnun, þar sem iðgjöld eru fjárfest í samræmi við fjárfestingarstefnu þeirrar sparnaðarleiðar sem sjóðfélagi velur. Lífeyristryggingar erlendra vátryggingafélaga geta hins vegar falið í sér loforð um tiltekna greiðslu í framtíðinni gegn greiðslu iðgjalda yfir ákveðinn tíma. Kostnaðaruppbygging slíkra samninga er einnig frábrugðin því sem gildir um innlendan séreignarsparnað. Lykiltölur um erlenda vörsluaðila afmarkast að þessu sinni við iðgjöld, lífeyri og fjölda rétthafa. Vísað er til lykilupplýsingaskjala viðkomandi afurða fyrir nánari upplýsingar um kostnað og ávöxtun.

Samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða fyrir árið 2025 má finna hér: