Meginmál

Samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða og sambærilegum gögnum frá vörsluaðilum séreignarsparnaðar

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða og sambærilegum gögnum frá vörsluaðilum séreignarsparnaðar. Á liðnu ári störfuðu 20 lífeyrissjóður í 25 samtryggingardeildum og af þeim buðu 13 sjóðir upp á séreignarsparnað í 44 deildum. Aðrir innlendir vörsluaðilar séreignarsparnaðar voru fimm talsins og buðu upp á sparnað í 31 séreignardeild. Þrír erlendir vörsluaðilar buðu upp á lífeyrisafurðir sem flokkast sem séreignarsparnaður.

Lífeyrissparnaður landsmanna í formi samtryggingar og séreignar lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila nam 8.785 ma.kr við lok ársins og jókst um 13% milli ára.

Samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða fyrir árið 2024 má finna hér: