Fara beint í Meginmál

Sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Íslenskra verðbréfa hf.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál sem varðar brot ÍV sjóða hf. gegn tilteknum ákvæðum laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, í tengslum við rekstur sérhæfða sjóðsins TFII slhf.

Breytingar hafa orðið á eignarhaldi ÍV sjóða hf. frá því að brotin áttu sér stað en félagið er nú orðið hluti af samstæðu Skaga hf. ÍV sjóðir hf. tók yfir félögin Íslensk verðbréf hf. og SIV eignastýringu hf. 31. mars 2025, ásamt öllum réttindum og skyldum þeirra. Sameinað félag heitir Íslensk verðbréf hf. og starfar sem rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða.

Frummat fjármálaeftirlitsins var sent til ÍV sjóða hf. 11. mars 2025. Með bréfi dags. 9. apríl 2025 lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar 15. maí síðastliðinn var málið talið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka málinu með sátt við félagið. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna tók fjármálaeftirlitsnefnd ákvörðun um að ljúka málinu með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 20.000.000 króna til ríkissjóðs, ásamt skuldbindingu um úrbætur.

Brot félagsins varða hagsmunaárekstra, útvistun og nýtingu atkvæðisréttar. Háttsemi félagsins fól í sér brot gegn mikilvægum ákvæðum laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða sem hafa m.a. að markmiði að styrkja rekstur sjóða og efla fjárfestavernd.

Í sáttinni, sem birt er í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins á brotunum lýst í samræmi við 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við nánar tiltekin ákvæði laga og ber að framkvæma úrbætur eigi síðar en 21. september 2025.