Fara beint í Meginmál

Sátt Seðlabanka Íslands og Íslenskra verðbréfa hf.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál sem varða brot Íslenskra verðbréfa hf. gegn tilteknum ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki í tengslum við söluferli á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka hf. sem fór fram hinn 22. mars 2022.

Íslensk verðbréf hf. hefur nú sameinast ÍV sjóðum hf. og samhliða því hefur fyrrnefnda félagið afsalað sér starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki. Sameinað félag ber heitið Íslensk verðbréf hf.

Með bréfi dags. 7. maí 2025 lýsti félagið yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Hinn 30. júlí 2025 taldi fjármálaeftirlitsnefnd málið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka málinu með sátt við félagið. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna tók fjármálaeftirlitsnefnd ákvörðun um að ljúka málinu með sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 30.000.000 króna til ríkissjóðs.

Brot félagsins varða hagsmunaárekstra, skráningu og varðveislu gagna, flokkun viðskiptavina, upplýsingagjöf til viðskiptavina, meginreglur um viðskiptahætti, stjórnarhætti og starfsleyfisskylda starfsemi án starfsleyfis. Háttsemi félagsins fól í sér brot gegn mikilvægum ákvæðum laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Í sáttinni, sem birt er í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins á brotunum lýst í samræmi við 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við nánar tiltekin ákvæði laga.