Fara beint í Meginmál

Seðlabankastjóri með erindi á ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum 2. júní 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti erindi á ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum í dag, 2. júní. Ráðstefnan var haldin á  vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins en tilefni hennar var útgáfa skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum sem samin var af hópi erlendra sérfræðinga. Í erindi sínu fjallaði Ásgeir um reynsluna af því að tryggja stöðugleika í litlu, opnu hagkerfi. Hann fjallaði m.a. um þær miklu breytingar sem voru gerðar á umgjörð peningastefnunar á árunum eftir fjármálakreppuna með aukinni áherslu á þjóðhagsvarúðarstefnu sem hefur m.a. leitt til meiri stöðugleika í greiðslujöfnuði auk þess að hemja útlaunaukningu og skuldasöfnun. Hann rifjaði upp að mörg áföll hefðu dunið á raunhagkerfinu síðasta áratuginn og hefðu sveiflur í gengi krónunnar frá árinu 2010 einkum orðið vegna slíkra áfalla. Gengi krónunnar hafi frá þeim tíma fremur verið sveiflujafnandi heldur en sveifluaukandi. Þá fjallaði hann um kosti og galla þess að Ísland tæki upp evru. Kostirnir væru m.a. þeir að Ísland yrði hluti af stærra myntsvæði og myndi viðskiptakostnaður lækka vegna þess í viðskiptum við Evrópusambandslönd, gjaldeyrisáhætta myndi minnka og vextir lækka. Á móti kæmi að  efla þyrfti önnur hagstjórnartæki í stað sjálfstæðrar peningastefnu til þess tryggja stöðugleika í hagkerfinu. Að öðrum kosti myndi aðlögun að áföllum eiga sér stað í gegnum atvinnustig, hagvöxt, fólksflutninga til og frá landinu sem og sveiflur í eignaverði. Núverandi vaxtastig ætti sér efnahagslega skýringar. Hann benti á að hluti af samfélagssáttmála Norðurlandanna væri hóflegur vöxtur launa sem samrýmist lítilli verðbólgu. Á Íslandi hefðu hins vegar allar tilraunir til að breyta þjóðarsátt í varanlegan samfélagssáttmála mistekist. Engin peningastefna yrði árangursrík til lengri tíma litið án stofnanaramma  og viðeigandi ríkisfjármálastefnu sem hvort tveggja styður við stöðugleika. Leiðin að lægri vöxtum væri sú sama með krónu og evru. Mikilvægt væri að fylga leikreglum hvora leiðina sem farin yrði.

Upptaka af ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum

Meðfylgjandi eru glærur sem seðlabankastjóri studdist við.