Fara beint í Meginmál

Seðlabankastjóri með erindi um gagnsæi í seðlabankastarfsemi á alþjóðlegri ráðstefnu 18. nóvember 2026

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti fyrr í þessum mánuði erindi um hlutverk gagnsæis í seðlabankastarfsemi á alþjóðlegu ráðstefnunni „The SNB and its Watchers" sem Karl Brunner Institute stóð fyrir.

Í erindinu rakti seðlabankastjóri hvernig starfsemi Seðlabanka Íslands hefði þróast í kjölfar fjármálakreppunnar 2008. Breytingar á lögum um Seðlabankann árið 2009 hefðu styrkt umgjörð peningastefnunnar, meðal annars með stofnun peningastefnunefndar og auknu gagnsæi við vaxtaákvarðanir. Með sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins árið 2020 hefðu sömu áherslur á gagnsæi einnig náð til fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits.

Ásgeir fjallaði einnig um þær áskoranir sem Seðlabankinn hefði staðið frammi fyrir í kjölfar heimsfaraldursins. Eftir mikinn samdrátt árið 2020 hefði tekið við kröftugur efnahagsbati sem leitt hafði til mikilla launahækkana og hækkandi húsnæðisverðs. Þessi þróun hefði stuðlað að aukinni verðbólgu og því að verðbólguvæntingar losnuðu frá verðbólgumarkmiði bankans þrátt fyrir hækkun vaxta.

Í því samhengi lagði Ásgeir áherslu á mikilvægi skýrrar og gagnsærrar upplýsingamiðlunar við framkvæmd peningastefnunnar. Seðlabankinn hefði meðal annars lagt áherslu á að skýra fyrir almenningi og markaðsaðilum að nauðsynlegt væri að halda raunvöxtum á bilinu 3–4% til að ná tökum á verðbólgunni. Sú upplýsingamiðlun hefði átt mikilvægan þátt í að hækka ávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa og tryggja að aðhald peningastefnunnar skilaði sér út í efnahagslífið.

Sjá hér skjal með kynningarefni sem seðlabankastjóri studdist við er hann flutti erindið hjá Karl Brunner Institute: On the central role of transparency in Icelandic central banking.