Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur samþykkt beiðni Seðlabanka Íslands um aðgang að endurhverfum viðskiptum eða EUREP-fyrirgreiðslunni (Eurosystem Repo Facility for Central Banks). Hún veitir bankanum aðgang að lausafé í evrum til skamms tíma og er því til þess fallin að auka viðnámsþrótt og sveigjanleika við stýringu gjaldeyrisforða Seðlabankans.
Með aðgangi að EUREP getur Seðlabankinn fengið evrur að láni gegn veði í hæfum verðbréfum í evrum. Fyrirgreiðslan styrkir viðbúnað Seðlabankans vegna fjármálaáfalla með því að tryggja bankanum skjótan aðgang að lausafé í evrum eftir þörfum og lágmarkar jafnframt mótaðilaáhættu. Aðgangurinn eykur þannig viðnámsþrótt þjóðarbúsins gagnvart áföllum á fjármálamörkuðum.
Seðlabanki Evrópu hefur gert EUREP að varanlegri fyrirgreiðslu sem gerir seðlabönkum utan evrusvæðisins kleift að fá evrur að láni gegn veði í hæfum og traustum verðbréfum í evrum. Markmið fyrirgreiðslunnar er að draga úr áhættu vegna lausafjárvanda í evrum utan evrusvæðisins með því að tryggja erlendum seðlabönkum skjótan, samræmdan og víðtækan aðgang að lausafjárfyrirgreiðslu í evrum. Fyrirgreiðslan styður jafnframt við eðlilega virkni fjármálamarkaða þegar á reynir. Hámarkslánsfjárhæð til seðlabanka utan evrusvæðisins er 50 ma. evra, en raunverulegt svigrúm til lántöku ræðst af framboði og verðmæti hæfra veðtrygginga.
Samkomulagið styrkir enn frekar samstarf Seðlabanka Íslands við Evrukerfið. Seðlabanki Evrópu birti einnig fréttatilkynningar undir yfirskriftinni Seðlabanki Evrópu útvíkkar EUREP fyrir seðlabanka og Seðlabanki Evrópu innleiðir útvíkkun á EUREP fyrir seðlabanka.