Í janúar 2022 opnaði Seðlabanki Íslands lausafjárglugga sem innlánsstofnanir fengu aðgang að til að bregðast við óvæntri og tímabundinni lausafjárþörf. Við endurskoðun á tækjum Seðlabankans hefur bankinn ákveðið að útvíkka þessa lausafjárfyrirgreiðslu þannig að hún nýtist lánastofnunum til að mæta tímabundnum sveiflum í lausafjárhlutfalli.
Breytingarnar taka gildi frá og með 7. júlí nk. og eru í meginatriðum þær að fallið verður frá kröfu um að viðkomandi mótaðili eigi ekki á sama tíma bundin innlán í Seðlabankanum. Lausafjárglugginn mun taka til allra lánastofnana og ekki verða sett fjárhæðarmörk á fyrirgreiðslu. Hægt verður að sækja um lausafjárfyrirgreiðslu til 14 daga alla viðskiptadaga Seðlabankans gegn tryggingum sem eru tilgreindar á veðlista bankans. Sækja þarf sérstaklega um endurnýjun lausafjárfyrirgreiðslunnar að 14 dögum liðnum.
Lögð er áhersla á að þessari fyrirgreiðslu er ekki ætlað að fjármagna útlánastarfsemi eða aðra ráðstöfun á eignahlið fjármálastofnana. Fyrirgreiðslan er því ekki hugsuð sem peningastefnuaðgerð heldur er henni einungis ætlað að auðvelda lánastofnunum að takast á við tímabundnar sveiflur í lausafjárhlutfalli.
Reglur Seðlabankans um lausafjárhlutfall lánastofnana fela m.a. í sér kröfu um lausafjáreignir að lágmarki 100% af hreinu útflæði lauss fjár næstu 30 daga samtals í öllum gjaldmiðlum, 80% í evrum og 50% í íslenskum krónum. Lausafjárstaða lánastofnana er vel yfir lágmörkum Seðlabankans og samanstanda lausafjáreignir þeirra einkum af innstæðum í Seðlabankanum og ríkisbréfum. Sú staða getur þó komið upp að einstaka lánastofnanir skorti hágæða lausafjáreignir til að mæta tímabundinni lækkun lausafjárhlutfallsins. Lausafjárglugganum er m.a. ætlað að taka á slíkum aðstæðum. Áréttað skal að þar sem Seðlabankinn er mótaðili í lausafjárfyrirgreiðslunni telst fjárhæð viðskiptanna ekki með í áætlun um útflæði á lausu fé næstu 30 daga.
Vextir á fyrirgreiðslunni sem hér um ræðir verða 0,5 prósentum hærri en vextir Seðlabankans á 7 daga veðlánum og 1,25 prósentum hærri en meginvextir bankans. Þann 7. júlí nk. verða vextir á 14 daga fyrirgreiðslunni því 8,75%. Nánari upplýsingar um þessa lausafjárfyrirgreiðslu má finna í skilmálum sem birtir verða á heimasíðu bankans ásamt veðlista. Samhliða verða gerðar breytingar á reglum um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands sem verða birtar á vef Stjórnartíðinda.
Frétt nr. 11/2025
30. júní 2025