Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2025 hefur verið birt. Viðamikið ítarefni fylgir skýrslunni.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 21. maí 2025. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2025.
Skýrsluna má nálgast hér:
Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar má finna hér: