Seðlabankar Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út sameiginlega skýrslu um greiðslur yfir landamæri á Norðurlöndunum.
Skýrsluna má nálgast hér:
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að þrátt fyrir náin tengsl Norðurlandanna eru greiðslur milli landa kostnaðarsamar. Fjallað er um kostnað almennings vegna slíkra greiðslna, þróun í greiðslumiðlun og aðgerðir sem gætu dregið úr kostnaði.
Kostnaður almennings af kortagreiðslum milli Norðurlandanna felst aðallega í gengisálagi bankanna. Álagið er mismunandi eftir löndum vegna ólíkra reglna og markaðsaðstæðuna. Hjá íslenskum korthöfum er gengisálag útgefenda almennt 2,5-3% og með því hæsta sem gerist á Norðurlöndunum.
Fyrir almenning er yfirleitt ódýrara að framkvæma millifærslu milli Norðurlanda í evrum en í norrænum gjaldmiðlum. Þetta á jafnvel við um millifærslur milli tveggja landa sem ekki hafa tekið upp evru. Meðal annars skýrist þetta af löggjöf Evrópusambandsins sem kveður á um að gjald fyrir greiðslu í evrum til annars EES-ríkis skuli vera það sama og fyrir samsvarandi greiðslu innanlands í innlendum gjaldmiðli.
Ein möguleg leið til lækkunar kostnaðar sem fjallað er um í skýrslunni er svokallaður gjaldeyrisviðskiptahluti rauntímagreiðslukerfis Evrukerfisins (TIPS). Ísland vinnur nú að innleiðingu TIPS fyrir íslenskar krónur og er stefnt að því að taka kerfið í notkun árið 2028. Þegar íslenska krónan hefur verið tekin í notkun í TIPS skapast möguleiki á þátttöku hennar í greiðslum milli gjaldmiðla innan kerfisins, en þegar eru danska og sænska krónan innan kerfisins auk þess sem norski seðlabankinn vinnur að innleiðingu norsku krónunnar í TIPS.