Fara beint í Meginmál

Söguleg gögn um fasta lánstímavexti nú aðgengileg 5. mars 2026

Seðlabanki Íslands hóf birtingu á föstum lánstímavöxtum (FLV) hinn 7. nóvember 2025. FLV sýna reiknaða vexti verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisskuldabréfa miðað við fastan lánstíma slíkra bréfa til 3, 5 og 10 ára.

Nú eru birt söguleg gögn um vextina, reiknuð aftur til byrjun árs 2020.

Gögnin eru aðgengileg á vefsvæði FLV.  Þá er birt ný tafla á vefsvæðinu sem sýnir nýjustu gildi bæði par-vaxta (FLVR) og eingreiðsluvaxta. Vextirnir verða uppfærðir kl. 11:00 á hverjum viðskiptadegi.

Frá miðjum mars verður sú breyting gerð að vextir verða birtir fyrir næstliðinn viðskiptadag í stað þess að birta þá með fimm daga töf. Einnig verða eingreiðsluvextirnir aðgengilegir fljótlega í Bloomberg.

Nánari upplýsingar um fasta lánstímavexti, FLV og FLVR, og forsendur útreiknings vaxtanna má finna á vefsíðu Seðlabankans:  Fastir lánstímavextir.