Fara beint í Meginmál

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu með erindi um áhrif launa á verðbólgu 21. október 2026

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu flutti í gær erindi um áhrif launa á verðbólgu á málstofu í Seðlabankanum. Erindið byggði á grein sem verður birt á ensku í ritröðinni Working Papers á vef Seðlabankans á næstunni. Í greininni kemur fram að hækkun launakostnaðar hefur áhrif á verðbólgu hér á landi en áhrifin eru breytileg yfir tíma. Þannig voru áhrifin tiltölulega veik á árunum fyrir heimsfaraldurinn en hafa aukist á undanförnum árum. Áhrifin virðast einnig háð aðstæðum í þjóðarbúinu. Þau eru því meiri sem verðbólga er meiri og verðbólguvitund almennings er meiri. Þá eru áhrifin einnig hlutfallslega meiri eftir því sem launahækkanir eru meiri og þau eru meiri í efnahagsuppsveiflum en -niðursveiflum. Þá virðast aukin áhrif launakostnaðar á verðbólgu undanfarin ár nátengd hækkun verðbólguvæntinga í efnahagsbatanum í kjölfar heimsfaraldursins og virðast væntingar bregðast meira við launahækkunum nú en áður.

Við flutning erindisins sýndi Þórarinn valda hluta úr greininni sem birt verður fljótlega í ritröðinni Working Papers, sjá hér: It’s complicated: The impact of wages on inflation