Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2025 dags. 22. apríl sl. þar sem peningastefnunefnd ákvað að lækka grunn dráttarvaxta um 0,25 prósentur við meginvaxtaákvörðun sína hinn 21. maí sl. sbr. yfirlýsingu þar um sama dag.

Dráttarvextir lækka því sem þessu nemur og verða 15,25% fyrir tímabilið 1. - 30. júní 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2025:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,45%
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,00%
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,63%