Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 08/2026, dagsettri 20. ágúst sl., þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 31. október 2026.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2026:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,35% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 4,45% (hækka úr 4,35%)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,57% (óbreyttir)