Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2025 20. október 2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 09/2025 dagsettri 19. september sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. nóvember 2025:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,15% (hækka úr 8,00%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,00% (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,43% (hækka úr 5,33%)