Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2025 20. nóvember 2025

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 10/2025 dagsettri 20. október sl. þar sem að meginvextir bankans hafa lækkað um 0,25% síðan þá. 
Dráttarvextir lækka því að sama skapi og verða 15,00% fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2025.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2025:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,45% (hækka úr 8,15%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,85% (hækka úr 4,00%)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,63% (hækka úr 5,43%)